Fara í efni
Umsóknarfrestur: Framkvæmdasjóður ferðamannastaða

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Opnað verður fyrir umsóknir mánudaginn 15. nóvember og er umsóknarfrestur til kl. 13 þriðjudaginn 7. desember. Auglýst er að nýju vegna formgalla við birtingu auglýsingar sem birtust 23. september og 25. september sl. en umsóknir sem bárust skv. þeirri auglýsingu halda gildi sínu og ekki þörf á að senda þær aftur inn. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.

Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:

  • Öryggi ferðamanna.
  • Náttúruvernd og uppbyggingu.
  • Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
  • Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.

Sjóðnum er ekki heimilt:

  • Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
  • Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins ásamt frekari upplýsingum um skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum island.is. Opna ísland.is

Umsóknartímabil er frá og með mánudeginum 15. nóvember til kl. 13:00 þriðjudaginn 7. desember. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.

 

 

Umsóknarfrestur: Framkvæmdasjóður ferðamannastaða