Fara í efni
Þingeyjarsveit: Umsóknarfrestur: Lista- og menningarstyrkir

Félags- og menningarmálanefnd Þingeyjarsveitar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna lista- og menningarstarfs á árinu 2021. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki og metur nefndin hvaða verkefni eru styrkhæf og hver ekki. Styrkþegar þurfa að hafa lögheimili í Þingeyjarsveit. Félagasamtök þurfa að skila inn ársreikningi liðins árs með umsókn. Þá ber öllum að skila inn til nefndarinnar greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár innan árs frá styrkveitingu. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu og/eða á skrifstofu Þingeyjarsveitar. Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast til skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið hlynur@thingeyjarsveit.is í síðasta lagi 8. nóvember nk.

Styrkir til íþrótta- og æskulýðsstarfs

Félags- og menningarmálanefnd Þingeyjarsveitar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna íþrótta- og æskulýðsstarfs á árinu 2021. Bæði einstaklingar og félagasamtök geta sótt um styrki og metur nefndin hvaða verkefni eru styrkhæf og hver ekki. Styrkþegar þurfa að hafa lögheimili í Þingeyjarsveit. Félagasamtök þurfa að skila inn ársreikningi liðins árs með umsókn. Þá ber öllum að skila inn til nefndarinnar greinargerð um framgang verkefnis og ráðstöfun styrkfjár innan árs frá styrkveitingu. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu og/eða á skrifstofu Þingeyjarsveitar. Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast til skrifstofu sveitarfélagsins eða á netfangið hlynur@thingeyjarsveit.is í síðasta lagi 8. nóvember nk.

Reglur um úthlutun má finna á heimasíðu Þingeyjarsveitar.

Þingeyjarsveit: Umsóknarfrestur: Lista- og menningarstyrkir