Fara í efni
Rannís auglýsir eftir umsóknum í Hljóðritasjóð

Hlutverk Hljóðritasjóðs er að efla hljóðritun á íslenskri tónlist. Veittir eru styrkir til að taka upp nýja, frumsamda íslenska tónlist og styðja þannig við nýsköpun hennar.

Hljóðritin skulu kostuð af íslenskum aðilum en mega einnig vera samstarfsverkefni við erlenda aðila. Athugið að ekki eru veittir framhaldsstyrkir til verkefna sem áður hafa hlotið styrki.

Útgáfa verkefnis má ekki hafa átt sér stað áður en umsókn um styrk berst Hljóðritasjóði.

Styrkir eru veittir til ákveðinna verkefna að hámarki til eins árs.

Umsóknarfrestur er til 15. september 2020 kl. 16.00.

Umsóknum og lokaskýrslum skal skila á rafrænu formi.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og hvernig sótt er um er að finna á síðu Hljóðritasjóðs

Rannís auglýsir eftir umsóknum í Hljóðritasjóð