Fara í efni
Ráðstefna: Auður norðsins og Byggðastofnun - Matur, jörðin og við

ATHUGIÐ: Ráðstefnu frestað vegna óviðráðanlegra aðstæðna

Félagið Auður norðursins í samstarfi við Byggðastofnun og fleiri aðila efna til ráðstefnu um matvælaframleiðslu í nútíð og framtíð. Ráðstefnan fer fram í Hofi á Akureyri og hefst um hádegi 10. nóv. og líkur seinni partinn daginn eftir. Nánari tímasetning og dagskrá er að finna hér.

Markmið ráðstefnunnar er að hvetja til upplýstrar umræðu um áskoranir í matvælaframleiðslu með hliðsjón af loftslagsmálum, heilsusjónarmiðum og fleiri áhrifaþáttum á neyslu og lífsstíl fólks. Sjónum verði sérstaklega beint að áhrifum á samfélög, byggð og atvinnulíf á landinu og þeim tækifærum sem við stöndum frammi fyrir.

Efni ráðstefnunnar ætti að höfða bæði til þeirra sem fást við matvælaframleiðslu og móta stefnu á því sviði en einnig til þeirra sem horfa til almennrar samfélagsþróunar og byggða- og atvinnuþróunar um land allt. Það er því skynsamlegt taka þessa daga frá til að missa ekki af mikilvægum upplýsingum og umræðu um þetta mikilvæga samspil sem getur skipt sköpum til framtíðar.

Fundarstjórar: Anna Guðný Guðmundsdóttir sérfræðingur Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og Magnús B. Jónsson formaður stjórnar Byggðastofnunar.

Hér er skráning á ráðstefnuna.

 

 

Ráðstefna: Auður norðsins og Byggðastofnun - Matur, jörðin og við