Fara í efni
Nordregio Forum 2021: Græn umbreyting

Áhrif fjarvinnu á byggðaþróun og græn umbreyting eru aðalmálefnin á dagskrá árlegrar ráðstefnu norrænu byggðastofnunarinnar, Nordregio, sem verður haldinn á netinu 23.-24. nóvember nk.

Yfirskrift og málefni Nordregio Forum 2021 er sannarlega aðkallandi og mikilvæg fyrir íslensk sveitarfélög og því er sveitarstjórnarfólk hvatt til að nýta tækifærið og skrá sig til þátttöku.

Í málstofunni um græna umbreytingu sem fer fram 24. nóvember frá kl 13:00-15:15, verða rædd áhrif þessara umbreytinga á sveitarfélög og svæði og hvernig hægt sé að leiða samfélög í gegnum sanngjarna græna umbreytingu.

Rætt verður m.a. hvernig smáborginni Lahti í Finnlandi tókst að öðlast viðurkenningu ESB sem græn höfuðborg Evrópu 2021 og farið yfir spurningar eins og hvers vegna græn umbreyting er mikilvæg og hvernig hægt er að vinna að markvissum svæðisbundnum loftslagsstefnum.

 

 

Nordregio Forum 2021: Græn umbreyting