Fyrirtækjastyrkur - Markaðsstyrkur
Fyrir hverja?
Markaðsstyrkur er eingöngu fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem verja að lágmarki 10% af veltunni til rannsókna- eða þróunarstarfs samkvæmt síðasta reikningsári.
Til hvers?
Hægt er að sækja um styrk vegna sérstaks markaðsátaks en einnig uppbyggingu innviða fyrirtækisins sem tengjast sókn á markaði.
Umsóknarfrestur
Næsti umsóknafrestur verður 15. júní 2020 kl. 16:00. Sjá ítarlegri upplýsingar á heimasíðu Tækniþróunarsjóðs.