Fyrir hverja?
Börn og ungmenni, á aldrinum 6-25 ára.
Til hvers?
Auka möguleika æskulýðsfélaga og samtaka á að bjóða fjölbreyttari starfsemi fyrir félaga sína.
Umsóknarfrestur
Athugið að búið er að breyta reglum og er nú einungis hægt að sækja um styrk tvisvar á ári; 15. febrúar og 15. október.
Næsti umsóknarfrestur er 15. október 2020, kl. 16:00.
Hvert er markmiðið?
Æskulýðssjóður byggir á Æskulýðslögum
og reglugerð um Æskulýðssjóð ásamt breytingum og breytingum. Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka.
Hverjir geta sótt um?
Allir þeir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.
Hvað er styrkt?
Verkefni fyrir börn og ungmenni á vegum æskulýsfélaga og æskulýðssamtaka (Sjá nánar 1. gr.
).
Skilyrði úthlutunar og forgangsatriði
Verkefnin þurfa að falla að markmiðum laga um Æskulýðsfélög. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né endurtekna viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar atburði né ferðir hópa. Lögð er áhersla á að styrkja almennan verkefniskostnað en ekki launakostnað.