    <language>is</language>
SSNE.is
Ferðaþjónustudagar 2026: Norðausturkjördæmi
Þriðjudaginn 10. nóvember standa Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Norðurlands og Austurbrú að fundi um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Norðausturkjördæmi. Fundurinn fer fram í Hofi á Akueyri kl. 17:00-19:00]]></description>
Skráðu viðburðinn þinn á viðburðadagatal Norðurlands
Á Norðurlandi er fjölbreytt úrval viðburða árið um kring og mikilvægt er að upplýsingar um þá séu aðgengilegar á einum stað. Markaðsstofa Norðurlands heldur úti viðburðadagatali á vefnum Upplifðu Norðurland þar sem finna má upplýsingar um viðburði víðs vegar um landshlutann.]]></description>
Pistill framkvæmdastjóra: Öflugar byggðir gera Ísland sterkara
Október hefur verið annasamur og fjölbreyttur mánuður hjá SSNE. Eins og oft áður hefur stór hluti starfsins hefur snúist um hagsmunagæslu og samtöl um ákvarðanir stjórnvalda sem hafa áhrif á þjónustu, atvinnulíf og búsetuskilyrði á Norðurlandi eystra. Mánuðurinn hefur einnig minnt okkur rækilega á þann kraft sem býr í samfélögunum okkar; í frumkvöðlum, fyrirtækjum, menningarlífi og fólki sem vill láta gott af sér leiða í sinni heimabyggð.]]></description>
Loftbrú þarf að tryggja viðráðanlegan og fyrirsjáanlegan ferðakostnað
Stjórn SSNE gagnrýnir boðaðar breytingar á Loftbrú og skort á efnislegu samráði við sveitarfélög og landshlutasamtök. Stjórnin vill nýta endurskoðunina til að styrkja Loftbrú sem byggðatæki og tryggja að breytingar skerði ekki kjör eða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að stjórnsýslu og stofnunum ríkisins.]]></description>
Rödd Norðurlands eystra inn í stóru málin
Haustið hefur verið annasamt í hagsmunagæsluverkefnum SSNE. Frá því ný stjórn samtakanna tók til starfa í sumar hefur hún skilað umsögnum um fjölbreytt mál sem snerta sveitarfélög, íbúa og atvinnulíf á Norðurlandi eystra. Þótt málin séu ólík er meginboðskapurinn sá sami: Ákvarðanir ríkisins þurfa að taka mið af staðbundnum aðstæðum og þekkingu, aðgengi að þjónustu og skilyrðum til atvinnuuppbyggingar. Þannig leitast stjórnin við að koma rödd Norðurlands eystra að stóru málunum strax við stefnumótun og lagasetningu.]]></description>
SSNE leggur áherslu á öfluga nærþjónustu og staðbundið ákvörðunarvald við sameiningu lögregluembætta
Fyrirhuguð sameining lögregluembætta hefur verið til umfjöllunar að undanförnu. Af því tilefni vill stjórn SSNE árétta helstu sjónarmið sín um málið og þau atriði sem samtökin telja mikilvægt að horft verði til við frekari útfærslu breytinganna.]]></description>
Virkjum íbúana - frestur til að skila inn hugmyndum rennur út á morgun
Verkefnið Virkjum íbúana miðar að því að auka virkni, samveru og þátttöku íbúa á Norðurlandi eystra með því að efla samfélagshús og aðra staðbundna samkomustaði sem lifandi miðstöðvar í heimabyggð. Með verkefninu verður sveitarfélögum og stofnunum þeirra veittur stuðningur til að þróa fjölbreytt verkefni, viðburði og starfsemi sem byggja á þörfum hvers samfélags og hvetja ólíka hópa íbúa til þátttöku.]]></description>
Góð þátttaka í Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra
Umsóknarfresti í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra er lokið og alls bárust 156 umsóknir í sjóðinn. Sótt var um styrki að fjárhæð samtals um 287 milljónir króna, en áætlað er að um 81 milljón króna verði til úthlutunar.]]></description>
Frábær vinnustofa Startup Landsins í Borgarnesi
Í byrjun mánaðarins hittust þátttakendur, ráðgjafar og samstarfsaðilar Startup Landsins í Borgarnesi á tveggja daga vinnustofu þar sem lögð var áhersla á tengslamyndun, skapandi hugsun og áframhaldandi þróun verkefna þátttakenda.]]></description>
„Orkuskipti þurfa að taka mið af þeim miklum vegalengdum sem við búum við“
„Stjórnvöld verða að tryggja að innviðir og hvatar til orkuskipta nái til dreifðra byggða og að raunhæfir valkostir séu til staðar þegar kröfur eru hertar og álögur auknar, ekki síst þegar kemur að stærri atvinnubílum og flutningum. Viljinn til breytinga er fyrir hendi, en tækifærin til að taka þátt þurfa líka að vera það,“ segir Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE.]]></description>
Ferðaþjónustan fagnaði uppskeru ársins á Norðurhjarasvæðinu
Frumkvöðlastarf, metnaðarfull uppbygging og tækifæri til framtíðar voru í brennidepli þegar Markaðsstofa Norðurlands hélt árlega uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar fimmtudaginn 15. október. Að þessu sinni fór hátíðin fram í Norðurþingi þar sem ferðaþjónustufólk víðs vegar að af Norðurlandi kynntist fjölbreyttri starfsemi og uppbyggingu í Kelduhverfi, á Kópaskeri og Raufarhöfn.]]></description>
„Gefandi að sjá verkefnin raungerast og springa út“
Ari Páll Pálsson hefur aðstoðað umsækjendur í Uppbyggingarsjóð Norðurlands eystra frá því sjóðurinn hóf göngu sína árið 2015. Eitt þeirra verkefna sem hann hefur fylgt frá hugmynd að veruleika er heimildarmyndin Eyríki, sem nýverið var frumsýnd og hefur vakið umræðu um samfélagið í Grímsey og framtíð eyjarinnar.]]></description>
Öflugur hópur frumkvöðla valinn í Startup Landið 2026
Fjórtán fjölbreytt nýsköpunarverkefni af öllu landinu hafa verið valin til þátttöku í viðskiptahraðlinum Startup Landið. Hraðallinn er sérstaklega hannaður til að efla atvinnulíf, verðmætasköpun og nýsköpun á landsbyggðinni.
Startup Landið veitir frumkvöðlum og smáfyrirtækjum utan höfuðborgarsvæðisins verkfæri, fræðslu og sérfræðiaðstoð til að þróa hugmyndir sínar áfram. Þátttakendur sækja vinnustofur, fá leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og vinna að mótun viðskiptalíkana, fjármögnun og markaðssetningu.
Hraðallinn stendur í sjö vikur og munu teymi kynna verkefni sín á lokaviðburði á Selfossi þann 6. nóvember.]]></description>
Hvernig skrifa ég umsókn í LIFE?
Landstengiliðir LIFE áætlunarinnar hjá Rannís leggja land undir fót og heimsækja Akureyri í október. Tilgangur ferðarinnar er að bjóða upp á námskeið fyrir umsækjendur sem hyggjast sækja um í LIFE árið 2027, sem og að bjóða upp á fundi í persónu með mögulegum umsækjendum.]]></description>
Pistill framkvæmdastjóra: Farsæld, nýsköpun og mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu
Haustin eru alla jafna annasamur tími og var septembermánuður einstaklega öflugur í ár. Mánuðurinn var óvenju viðburðaríkur hjá SSNE og einkenndist öðru fremur af samtali, samstöðu og skýrri sýn á þau verkefni sem fram undan eru á Norðurlandi eystra.]]></description>
Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað
Uppbyggingarsjóður er eitt mikilvægasta tæki Sóknaráætlunar Norðurlands eystra til að styðja við frumkvæði fólks á svæðinu. Þar mætast atvinnuþróun, nýsköpun, menning og uppbygging samfélaganna okkar. Á hverju ári fá fjölbreytt verkefni um allt Norðurland eystra stuðning til að komast af hugmyndastigi og í framkvæmd.]]></description>
Föstudagsfundur SSNE: Hvar eru ríkisstörfin?
Á föstudagsfundi SSNE þann 2. október kl. 12:00 kynnir Þorkell Stefánsson, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, nýja greiningu stofnunarinnar á staðsetningu ríkisstarfa. Þar kemur fram að hægt hefur á fjölgun stöðugilda á vegum ríkisins, en þróunin er ólík eftir landshlutum.]]></description>
Ráðgjöf vegna Uppbyggingarsjóðs víða um Norðurland eystra
Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er opinn fyrir umsóknir og á næstu vikum verður starfsfólk SSNE með kynningar, viðveru og ráðgjöf á nokkrum stöðum á starfssvæðinu. Markmiðið er að auðvelda umsækjendum að leita upplýsinga og ráðgjafar við undirbúning umsókna.]]></description>
Vetrarflug til Akureyrar í brennidepli á vinnustofu um Bretlandsmarkað
Á fimmtudag tók SSNE þátt í vinnustofu um breska ferðamarkaðinn og sölumiðað markaðsstarf sem haldin var í Hofi á Akureyri. Markaðsstofa Norðurlands stóð að vinnustofunni í samstarfi við Íslandsstofu. (Ljósmynd: Signý Jónasdóttir)]]></description>
Virkjum íbúana